BÚ!
vó alltíeinu eitthvað að gerast á þessari síðu, þetta er reyndar ekki blogg, bara tilkynning, eins og þeir sem hafa eitthvað kíkt hingað vita þá er ég hætt að blogga á þessa síðu og því er síðan dauð eins og salsa tilkynnti í síðustu færslu. Ég ætla samt að blogga, finnst mjög asnó að blogga ekki, en ekki fyrr en eftir próf og þá á annarri síðu. Ef ég fer að dunda mér við það núna get ég nú bara kvatt þessa önn þar sem þessi prófatörn hefur EKKI gengið vel!!!! :S
Nýja síðan verður tilkynnt hér í næstu viku...spennan magnast! ;)
síjoll
Donnerstag, Mai 12, 2005
Sonntag, April 17, 2005
Dienstag, April 12, 2005
Nú sit ég við skrifborð frænda míns.....
ha ha ha þarna blekkti ég ykkur. Þið hélduð jafnvel að þetta væri pistill frá 21.mars 2005, en í rauninni er 12.apríl í dag. Svona er hægt að spila með fólk. Ég fór áðan að versla föt á nýfætt krílí með henni jensínu vinkonu minni og það voru föt til sölu fyrir nýfædd börn með myndum af geimverum á. Það finnst mér ósmekklegt og ekki við hæfi. En smekkur manna er misjafn. Elsku bílínn minn var bombaður á miklubrautinni um daginn :( sem betur fer slapp eigandinn við alvarleg meiðsli en fór samt upp á slysó. Er ég nú að jafna mig, aðallega við hið sálræna áfall að missa steina minn. Fallegur bíll, en því miður er hér nákvæmlega eins bíll fyrir utan íbúð mína og því munu minningar mínar um góðan bíl ásækja mig stöðugt. Inga er komin frá Lapplandi og var ég mjög glöð að sjá hana á ný eftir langan aðskilnað. Svo er ég komin með sumarvinnu og mun ég jafnvel vinna með álfkonunni og er það mjög spennandi! en núna ætla ég að fá mér pítsu.
Montag, März 21, 2005
Núna sit ég við skrifborð frænda míns í kópavoginum og við fætur mínar liggur loðið krútt. Hann er alveg ótrúlega heimskur og kippir sér ekkert upp við það að ókunnugt fólk sé að vaða um húsið hans. Annars kom ég á netið til að afþakka þau störf sem mér hefur boðist í sumar því ég fékk vinnuna sem ég vildi...hjá fríhöfninni :D Er voða ánægð, vinn sirka 15 daga mánaðarins, 12 vaktir í senn, en það er full vinna. Jibbí jei!
Allt er að ganga upp þessa dagana!
En á fimmtudaginn fljúgum við Raggi til Finlands og keyrum í 3 tíma norður í sumarbústað Pilviminnar og á föstudaginn keyrum við svo 12 klst til Lapplands. Svo verður bara "sjúbb sjúbb sjúbb" eins og hún Rachel vinkona okkar í Friends orðar það, í heila viku :)
Við höfum sem sagt 2 daga til að læra eins og maníakar og pakka drasli. Ég hef tekið þá afdrifaríku ákvörðun að taka bara með mér snjóbretti en leigja bara gönguskíði fyrir þann dag eða þá daga sem við förum í þannig túra. En það eru yfir tvö hundruð kílómetrar af gönguskíðaleiðum þarna með svona stoppistöðum þar sem maður getur borðað nestið sitt við varðeld, svaka rómó mar! Ég er hinsvegar eins og belja á snjóbretti, enda hef ég ekki stigið á slíkt fyrirbæri síðan ég flutti til Íslands, en metnaðurinn stendur til þess að verða pró að viku liðinni. Annars mun ég líklega líta skíðafólkið öfundaraugum því mér finnst fátt æðislegra en að vera á svigskíðum...en ef ég verð alveg klikk þá bara leigi ég mér svigskíði einn dag! Betra en að dröslast með þau norður allt Finland.
Sonntag, März 20, 2005
Jæja, þegar ég steig út úr sturtunni í dag hringdi síminn og í framhaldi af því hef ég ákveðið að yfirgefa eilandið Ísland nk fimmtudag og mun ferðast ásamt Ragganum mínum, Pilvi minni og fjölskyldu hennar hingað. Spennan er gríðarleg!!!
Samstag, März 19, 2005
Drop it like it's hot!
Já ég gleymdi því áðan herrar mínir og frúr að koma með enn eitt werchter öppdeitið þó svo ég sé ekkert á leiðinni þangað, er samt alltaf spennt að fylgjast með lænöppinu birtast :S svona er ég sorgleg. Nýjasta nýtt er að SNOOP DOGG mætir á svæðið, og önnur ný nöfn eru chemical brothers, garbage og green day. Annars stendur þetta allt á heimasíðunni.
Ég vildi óska að ég gæti bara alltaf gert allt sem mig langar til að gera!!! :'(
Svo er kominn nýr tengill á heimasíðuna hjá nefndunum sem eru að vinna í stjórnarskrárbreytingum en það er rosalega mikilvægt fyrir alla Íslendinga að fylgjast með og taka þátt í umræðunni því þetta varðar svo mikilvæg réttindi okkar allra!!!
Annars er ég bara pirruð á því hvað ég fæ stundum mikla munnræpu og fer að röfla um hluti við fólk sem ég á ekkert að vera að tala um...svona er þetta bara...ég er bara svo mikill lúði. Maður fer alltaf á bömmer yfir svona en það skiptir aldrei neinu máli, svona er mar skrítinn!
Í kvöld ætla ég að borra, sauma út og glápa og bíómyndir í sjónvarpinu :) tjillað!
Athyglisvert hvað mar fær alltaf mikla bloggræpu hér á bókhlöðunni góðu!
Það var mjög fínt í kokteilnum í gær, svaka flott hjá Sjóvá, enda besta tryggingafyrirtækið ;)
Ég er núna í svokölluðu "limbo" í vinnumálum...er komin með mjög fína og spennandi sumarvinnu en ég tími ekki að þiggja hana fyrr en ég veit hvort ég fái aðra vinnu sem ég var í viðtali fyrir í gær :/ Ég er nebbla soldið spenntari fyrir henni því hún veitir mér meiri frítíma og soldið hærra kaup. Samt veit ég ekkert almennilega hvað ég vil og veit ekkert hvenær ég frétti hvort ég fái vinnuna eða ekki og ég get ekki látið vinnuna sem ég er komin með bíða endalaust. Soldið stressandi! En við vonum bara það besta...
Mér líst svaka vel á að það sé að koma páskafrí! Ég þarf bara að mæta á mánudaginn og svo er ég í fríi alveg fram á næsta miðvikudag :D Við Raggi ætlum að flytja í kúk og pissuland í kópavoginum í eina viku til að passa þann sem kúkar og pissar út um allt, en það er íslenskur hvolpur sem heitir Snati. Mér líst barasta gríðarlega vel á það, gott að komast í annað umhverfi, við verðum með bíl og það er trampolín í garðinum en þar er mjööög gaman að hoppa ;)
Freitag, März 18, 2005
home alone
ég er alltaf að bíða eftir að nýji herbergisfélaginn minn láti sjá sig. á mánudaginn verða komnar 2 vikur, en það er svo sem ágætt að hafa íbúðina út af fyrir sig. Bara svolítið tómlegt :/
gat síðan ekki sofnað í gærkvöldi og fór bara e-ð að prjóna og allt í einu var klukkan orðin 5. ég er farin að efast um að þessi lopapeysa muni e-rn tíman klárast. ég var að verða geðveik á þessari ermi í nótt og það var allt í lopa, í hárinu á mér og ofan í hálsinum. ullabjakk. En þá er nú gott að eiga límrúllu krakkar mínir. Rúlla lopanum burt.
ég er í ágætis föstudagsskapi og ætla út að kaupa mér hvítvín
sjaúmst!

